21.3.2008 | 21:04
Leti Gelgjunnar
Þegar stelpur eru komnar á vissan aldur þá byrjar gelgjuskeiðið og letin. Maður nennir ekki í bíltúra en neyddur til þess að fara. Og svo kemur að bústaðaferð um helgina í einn dag til vinkonu mömmu, en maður vill bara chilla þessa helgi af því að það er páskafrí og páskar á sunnudaginn. Maður nennir svoooo ekki í þessa bústaðaferð og Unglingurinn fær að sleppa henni en ekki Gelgjan. Lífið þarf að sökka þó að maður sé ungur.
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert yngsti bloggarinn sem ég hef rekist á hérna á mogga-blogginu. Til hamingju með nýja bloggið þitt
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.3.2008 kl. 21:13
takk fyrir!
þetta er í fyrsta sinn sem ég hef getað skrifað eitthvað um familíuna!
Anna Mae Cathcart-Jones, 21.3.2008 kl. 21:25
hehe krúslan hennar mömmu sinnar. Jú jú hop hop allir í bústað á morgun. Því mamma segir það.
Jóna Á. Gísladóttir, 21.3.2008 kl. 21:29
Hæ sætust
Velkomin á bloggið
Ég veit að hann frændi þinn skilur þig algjörlega,
en það verður örugglega gaman að skreppa aðeins upp í bústað með fjölsk.
Hafðu það sem allra best dúlla mín
Kveðja Anna móðursystir ;)
Anna Bragadóttir (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 22:58
Well well well, Another blogger in the family. Good luck my little one. Have fun. Love you, Dad
Bretinn (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 23:35
Já kannski yngsti moggabloggarinn en örugglega einn þeirra betri samt. Velkomin fallega stúlka....
Ragnheiður , 22.3.2008 kl. 00:26
velkomin á bloggið - verður bara spennó að sjá þína hlið á málunum
Rebbý, 22.3.2008 kl. 11:43
Velkominn á moggabloggið, ég á eftir að fylgjast með þér. Strákurinn minn er að verða 8 ára og hann er farinn að blogga.
Gangi þér vel.
Kv. Linda
Linda litla, 22.3.2008 kl. 11:48
Til hamingju með að vera komin á bloggið Anna Mae. Gaman að þú skulir hafa áhuga á málfræði og stafsetningu, því það hef ég nefnilega líka.
Villtu vera bloggvinur minn?
Knús
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.3.2008 kl. 11:52
Velkomin á bloggið Gelgja.
Þú mátt alveg neita mér um bloggvináttu, ég verð bara spældur, en það eldist kannski af mér
Heimir Lárusson Fjeldsted, 22.3.2008 kl. 11:56
Velkomin í hóp geðveikra og þunglyndra ( Bara grín )
Já þetta erfitt líf þegar maður er bara lítill svo versnar þetta bara
Láttu nú mömmu þína svitna yfir færlsunum þínum , hún hefur bara gott og gaman af því
Góðar stundir og gleðilega Páska Gelgja
Ómar Ingi, 22.3.2008 kl. 11:57
Velkomin á moggabloggið
Miðað við fyrstu færsluna þá er hér upprennandi áhugaverður bloggari þó ung sé
Dísa Dóra, 22.3.2008 kl. 12:02
Velkomin á moggablogg
Úff já ég man eftir þessum ferðum sem þurfti að fara! Bíltúrar í sveitina - heimsóknir til fólks sem maður þekkti ekki neitt En það er gaman að þeim núna, þegar svona langt er um liðið.
Hlakka til að fylgjast með þér unga snót
Hrönn Sigurðardóttir, 22.3.2008 kl. 12:04
Velkomin á bloggið Anna Mae, ég skil hvað þú ert að meina með að vilja ekki fara í sumarbústað ég á 4 sem fóru í gegnum þetta að vilja ekki fara með, fyrst vissum við ekki alveg hvernig átti að taka á svona en svo endaði það á þeirri yngstu sem er flökkurófa og hún ætlaði nú bara aldrei að hætta að fara með, en hætti þegar hún fór sjálf að keyra, en annars tekur þetta mislangann tíma hjá krökkum eins og öll tímabil gera. Stundum ættu mömmur að vera bannaðar, ekki satt?
Þú kemst yfir þetta.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 22.3.2008 kl. 12:10
Velkomin á Moggabloggið, Gelgja sæta. Okkur finnst auðvitað öllum að við þekkjum þig af skrifum mömmu þinnar - en þú leynir örugglega á þér. Ef þú æfir þig að skrifa verðurðu jafngóður penni og hún...
Ég tek undir með Jennýju... hef líka mikinn áhuga á málfræði og stafsetningu, orðum og uppruna þeirra.
Lára Hanna Einarsdóttir, 22.3.2008 kl. 12:18
velkominn á moggablogg....viltu vera memm???
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 22.3.2008 kl. 12:31
Velkominn á bloggið unga dama. Ég mun fylgjast með blogginu þínu, gangi þér vel og góða skemmtun í bústaðnum með gamla settinu. .
Erna, 22.3.2008 kl. 12:55
Það verður svo sannarlega spennandi að fylgjast með þínum skrifum. Mamma þín er "uppáhalds" bloggarinn minn og það er sagt að "eplið falli aldrei langt frá eikinni"!
Sigrún Jónsdóttir, 22.3.2008 kl. 12:59
Innilega velkomin á bloggið.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.3.2008 kl. 13:12
velkomin á moggablogg :)
Gunna-Polly, 22.3.2008 kl. 13:41
Ekkert kjarkleysi þarna á ferðinni. Velkomin og bloggaðu að lífi og sál!
Edda Agnarsdóttir, 22.3.2008 kl. 13:47
Velkomin
Vignir, 22.3.2008 kl. 14:43
Hólmdís Hjartardóttir, 22.3.2008 kl. 14:54
Vertu hjartanlega velkomin á bloggið
Og þetta með sumarbústaðaferðina þína, hefurðu spáð í hvernig þetta lítur út í augum foreldranna, sérstaklega mömmunnar? Hahahaha, ég er mamma einnar 14 ára sem verður 15 í sumar. Ég fengi hana ekki með mér í slíka ferð nema að múta henni með svona c.a. 100.000 krónum = hún færi ekki með mér.
Mikið vildi ég að hún væri orðin 11 ára aftur! Veistu að ég sakna þess að vera með henni og að geta knúsað hana eins og ég fékk enn að gera þegar hún var jafn gömul þér. Og þá nennti hún enn að fara með mér í bílferðir og gönguferðir hingað og þangað.
Þú kemst á þennan aldur fyrr en varir, og ég ráðlegg þér að njóta þess aldurs sem þú ert á hverju sinni, því hann kemur ALDREI aftur. Unglingsaldurinn er erfiðari en þig grunar.
En nú ætla ég að óska þér Gleðilegra Páska og deildu nú páskagóðgætinu niður á dagana, svo magaverkurinn skemmi ekkert fyrir þér
Kveðja ú Hveró,
Linda
Linda Samsonar Gísladóttir, 22.3.2008 kl. 15:49
Já anna ég kannast við þetta var síðast í gær að ströggla við gelgjuna mína hún nennti ekki með fjölskilduni í heimsókn á selfoss en þið vitið að það þíðir ekkert að þrasa við yfirvaldið við vinnum alltaf
Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 15:50
Gott hjá þér að byrja að blogga.Þú átt eftir að standa þig vel.
Óskar Aðalgeir Óskarsson, 22.3.2008 kl. 17:21
Velkominn í bloggheima Anna Mae! Verður gaman að fylgjast með þér í framtíðinni
Ía Jóhannsdóttir, 22.3.2008 kl. 18:14
Sjáðu nú gefur þú mér langt nef, ég skrifaði velkominn í stað velkomin
Ía Jóhannsdóttir, 22.3.2008 kl. 18:16
Velkomin á bloggið... það verður gaman að heyra hina hliðina frá ykkur :-)
Einar Indriðason, 22.3.2008 kl. 18:25
Velkomin á bloggið.Segi eins og Krumma systir mín,viltu vera memm?
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 19:15
velkomin gelgja, á bloggið
Brjánn Guðjónsson, 22.3.2008 kl. 20:36
Velkomin á bloggið. Ég hlakka mikið til að fylgjast með þér.
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 23.3.2008 kl. 00:20
Velkomin á bloggið flotta Gelgja . Hlakka til að fylgjast með skrifum þínum
Rannveig Margrét Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 00:26
Til hamingju með bloggsíðuna þína og velkomin á Moggabloggið. Gangi þér vel :)
Marta B Helgadóttir, 23.3.2008 kl. 01:24
Það eru svo margir sem virðast þekkja þig og þitt fólk en ég er alveg úti að aka. Það sem hlýjaði mér um hjartaræturnar var lýsingin sem þú gefur á sjálfri þér: "Ég elska málfræði, stafsetningu..."
Ég er forfallinn íslenskuunnandi (reyndar fleiri mála líka) og langar svo að koma á stofn hersveit til að verja tunguna okkar. Mig langar að fylgjast með þér svolítið og gá svo hvort þú gerðist e.t.v. liðsforingi í herdeildinni. Ég yrði e.t.v. birgðavörður.
Það er ómetanlegt að hafa svo ungan áhugamann um íslenskuna, eina vonin til að unnt verði að virkja mannskapinn. Hættum að virkja fallvötnin og virkjum heilabúið. Búið!
Beturvitringur, 23.3.2008 kl. 04:01
Velkomin
Katrín Ósk Adamsdóttir, 23.3.2008 kl. 13:47
Velkomin á bloggið
Ásta María H Jensen, 23.3.2008 kl. 14:07
velkomin velkomin gelgjurnar á mínu heimili eru mjög svo sammála þér
Gríman, 23.3.2008 kl. 14:48
Velkomin á bloggið duglega stúlka
Hanna, 23.3.2008 kl. 14:56
Velkominn í bloggheima Jónudóttir".
Gangi þér vel... þú ert frábær.
Linda Lea Bogadóttir, 23.3.2008 kl. 15:31
Velkominn í bloggheima... og gleðilega páska - Skilaðu bestu kveðju til eiginkonu Bretans og allra hinna
Kv. Steini
Þorsteinn Gunnarsson, 24.3.2008 kl. 03:00
hææj flott síða:) gangi þér vel með hana :D
íris (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 18:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.