8.4.2008 | 22:10
Pynting en samt gaman
Þegar ég er á fimleikaæfingu þá er rosalega gaman þegar það kemur að stökkum og heljarstökkum. Annars er algjör pynting þegar maður er að teyja. Splitt og spíkat og meira splitt og spíkat. En á öllum æfingu þá gerum við: Brú, heljarstökk, pike, straight, kraftstökk, handahlaup, arabastökk, armbeyjur, þröngar armbeyjur, magaæfingar bakæfingar og margt fleira. Og í byrjun æfingar þá hitum við upp með erfiðum hoppum, snúningum og hlaupum. Þó að þetta sýnist ekki auðvelt og skemmtilegt þá er það samt auðvelt, skemmtilegt og maður verður rosa montinn ef maður nær þessu öllu. Það væri gaman fyrir litlar stelpur að byrja í byrjendahóp. Þeim gæti fundist þetta rosalega gaman. Og svo eru úrvals fimleikabolir, síðerma og stutterma til sölu! Þetta er rosalega gaman.
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Átt þú ekki að vera komin í rúmið fröken?
Jóna Á. Gísladóttir, 8.4.2008 kl. 22:18
Ég á tvær stelpur sem báðar voru í fimleikum, sú eldri sneri sér alfarið að ballett, en sú yngri var komin í úrvalshóp og var í fimleikum 6x í viku. Það var dálítið álag fyrir mig því ég þurfti alltaf að keyra hana og sækja. Svo skipti hún yfir og fór í fótboltann.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 9.4.2008 kl. 00:35
Ég á 3 stelpur sem voru í áhaldafimleikum, stelpan mín sem er núna 20 ára fékk silfur verðlaun á íslandsmeistaramóti þegar hún var 11 ára. Hún hafði rússneska þjálfara, sem voru mjög góðir en svo strangir að stelpurnar fóru oft að gráta á æfingum. Gangi þér vel í fimleikunum
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.4.2008 kl. 00:59
Ég bara finn til í líkamanum að hugsa um þessar æfingar fimleikafólks
Gangi þér sem allra best í leikum fima
Ómar Ingi, 9.4.2008 kl. 11:43
Þú hlýtur að vera alveg ofboðslega liðug að geta þetta allt saman og meira að segja fundist það auðvelt. Greinilega upprennandi fimleikastjarna.
Helga Magnúsdóttir, 9.4.2008 kl. 13:57
drengurinn minn var að byrja í karate fyrir ekki svo löngu og er það líka hörku púl.. ekki samt svona mikið hörku púl ennþá, en þetta verður svo bæði erfiðara og auðveldara með tímanum.. Hann verður betri í æfingunum en æfingarnar verða svo efiðari
Þetta er örugglega svoleiðis með fimleika líka..
Guðríður Pétursdóttir, 9.4.2008 kl. 14:39
Jóna góð hehehehehehe.Dugleg ertu gelgjan mín
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 22:02
ég á eina 6 ára sem er búin að vera í fimleikum í 2 ár og hún alveg elskar þetta allt saman...ennþá...hún er nú að byrja í fótbolta líka og þarf svo bara að velja þessi elska þegar hún byrjar í skólanum í haust...
Fimleikar eru góður grunnur fyrir allar aðrar íþróttir sem barn kann að vilja fara í síðar, þar sem þeir gefa svo góða þjálfun á nánast öllum kroppnum.
Ásta Björk Hermannsdóttir, 10.4.2008 kl. 08:45
Stelpurnar mínar voru í fimleikum í mörg ár. Önnur alveg til 15 ára aldurs. Það er um að gera að berjast í íþróttunum Anna Mae, en samt í hófi.
Knús á þig
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.4.2008 kl. 09:58
Þú ert ótrúlega dugleg
'Eg man eftir mömmu þinni þegar hún var lítil altaf að æfa sig að fara í splitt
Gangi þér vel í öllu því sem þú ert að gera
Knús á þig
Anna Margrét Bragadóttir, 10.4.2008 kl. 10:30
blabla
Arnór Heiðar Benónýsson, 13.4.2008 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.