Englands ferðin skemmtilega

Fjölskyldan fór til Englands í sumar og það var geggjað gaman! Við vorum í flugvélinni og mér leiddist ekkert smá. Þegar við forum að fara að lenda (sem tók 30 mín. takk kærlega fyrir) þá fór Unglingurinn að fríka smá útGrin. Við vorum loksins lent þá hugsaði ég að við værum svo að fara til ömmu en nei við áttum eftir að fara í gegnum enska flugvöllin. BORING! en svo vorum við ekki það lengi að fara í gegn. Frændi okkar Martin kom að sækja okkur og ég þrfti að sitja í miðjunni eins og alltaf og beltið var að drepa mig. Og svo þegar við komum eftir langan klukkutíma, búin að kafna úr svita, hita og þreytu eftir að hafa reynt að koma mér úr beltinu ( það þrýsti bara á magann). Við komum til ömmu og svo fórum við Daníel (unglingurinn) strax uppí gestaherbergi og byrjuðum að panta hvor rúmið við vildum fá. Ég fékk gluggarúmið sem var ekki svo slæmt. Annan daginn sem við vorum þarna fór Martin með okkur að sýna okkur húsið sem hann var að byggja fyrir Jenny, Sam og sig. Það er huge! VIð fórum svo heim. Ég hitti svo frænku mína Indy. Hún heitir India. Hún kom í stutt stopp og fór svo aftur heim. Næsta dag kom hún aftur og við fórum í sund og rennibrautirnar voru geggjaðar. Við fórum hrikalega oft í bláu rennibrautina hún var með mörgum beyjum og maður fór á pomsur sem leiddu okkur upp og snéri okkur svo við þannig að við fórum alla restina afturábak. við fórum upp áfturábak upp og svo afturábak niður. Rosalega krípí. Þegar við fórum uppúr þá voru allar sturturnar kaldar nema tvær. þegar við vorum búnar að klæða okkur þá fórum við og keyptum okkur kelinuhringi með sprinkles og milkshake. Hún fékk sér súkkulaði en ég jarðaberja. Daníel fékk sér krap. Við fórum heim og svo mátti ég gista með henni. Daginn sem ég gisti með henni þá fórum við að týna snigla með hús á bakinu. Við settum þá í box og fengum okkur fiskstauta, baunir og franskar. Það var mjög gott. þegar við vorum búnar að borða þá fengum við okkur cookie dough ice cream. Hann var Heaven On Earth! og á meðan vorum við í webkinz. Svo þegar við fórum að sofa sögðum við góða nótt við kettlingana og horfðum á The Simpson Movie. Og svo fórum við að sofa. Einn daginn þá fórum við að skoða bæinn þar sem pabbi ólst upp í. Bærinn hét Torqay. Við fórum að sjá Hairspary the musical og leikararnir fóru að skellihlæja í miðju atriði. Þegar sýningin var búin þá tókum við göngutúr í gegnum China Town og fengum okkur McDonalds. Við löbbuðum að hótelinu og tókum strætó held ég. Við vorum á hóteli sem hét The Grand Hotel. Það var með spa, sundlaugum og geðveikum herbergjum en ömulegri lyftu. Ég, pabbi og Daníel fórum í sund í hótelinu. Það var með innisundlaug sem var djúp. Og svo fórum við í úti sundlaug sem var hrikalega djúp og var með gosbrunn í miðjunni. Svo fórum við uppúr. Ég missti tönn og setti hana undir koddann en tannálfurinn kom ekki út af því að ég sagði mömmu ekki frá því að ég setti hana undir koddann. En þegar við komum heim til ömmu segir hún að hún fann svona 20 pund í töskunni sinni og gaf mér þau. Ég og Indy fórum og keyptum sama náttkjól, sama pils, sama ramma og sama webkinz. Við fórum í svona mini teyjustökk. Svo fórum við heim og þarna var litli frændi okkar Sam og Martin. Jenny komst ekki. Við báðum Martin að leika feluleik með okkur og hann sagði nei milljón sinnum þannig að við þurftum að gera samning við hann og þá sagði hann já.Við spiluðum svona 2 sinnum en þá fórum við að leika við Sam. næsta dag kom Martin, Jenny og Sam en Indy var ekki þarna þannig að ég hringdi og spurði hvort hún nennti að koma. Og við tvær vorum svona að passa hann Sam. Það var daginn sem við fórum heim. Við lögðum af stað kl. sjö og flugvélin fór kl. 9. Við fórum heim og það var seint en ég fór ekki að sofa.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Gaman að lesa um ferðina ykkar til Englands.

Það er líka gaman að sjá að þú ert farin að blogga aftur mér finnst svo gaman að lesa færslurnar þínar ;)

Klemm og knús á þig elsku frænka mín

Anna Margrét Bragadóttir, 15.7.2008 kl. 23:34

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það hefur verið skemmtilegt fyrir þig að hitta ættingja þína úti í Englandi. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 16.7.2008 kl. 00:33

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

heldurðu að ég og tannálfurinn séum í símasambandi?

Jóna Á. Gísladóttir, 16.7.2008 kl. 01:16

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Flott ferðasaga hjá þér Anna Mae!

Þetta hefur greinilega verið rosa skemmtileg ferð

Vona að sumarið haldi áfram að vera viðburðarríkt hjá þér

Bergljót Hreinsdóttir, 16.7.2008 kl. 16:30

5 Smámynd: Ómar Ingi

Já nei þarna ertu þá

Flott færsla hjá þér.

Ómar Ingi, 16.7.2008 kl. 18:06

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Frábært að þú ert byrjuð að blogga aftur Anna Mae.  Þessi ferðasaga er skemmtileg.  Þú mátt segja henni mömmu þinni að skrifa sína ferðasögu.

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.7.2008 kl. 22:33

7 identicon

Skemmtileg ferðasaga.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 19:05

8 Smámynd: Linda litla

Þetta hefur verið frábær ferð.... nei ekki frábær ferð, en það hefur verið gaman þegar þú komst á leiðarenda. Vertu velkomin heim og haltu svo áfram að blogga, það er svo gaman að lesa bloggið þitt.

Það var gaman að lesa ferðasöguna og þú hefur sko aldeilis fengið nóg að borða í ferðinni sé ég. Hafðu það gelgja.

Linda litla, 21.7.2008 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Mae Cathcart-Jones
Anna Mae Cathcart-Jones
Mér finnst gaman að skrifa sögur og ljóð og mér finnst mjög gaman að dansa.'Eg er 11 ára og ég er ljóshærð og freknótt.Ég elska málfræði, stafsetningu, list og á góða fjölskyldu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 556

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband